Karfan er tóm.
- Styrktarfélagið
- Æfingastöðin
- Reykjadalur
- In English
Æfingastöðin er miðstöð þjónustu og þekkingar í hæfingu og endurhæfingu fyrir börn og ungmenni.
Á Æfingastöðinni starfa sjúkra- og iðjuþjálfar með víðtæka reynslu af þjálfun barna og ungmenna. Veitt er ráðgjöf og þjálfun með það að markmiði að efla þátttöku í daglegu lífi og auka þannig lífsgæði barnsins og fjölskyldunnar.
Auk þess sækir afmarkaður hópur fullorðinna þjónustu á Æfingastöðina.
Í náinni samvinnu við fjölskyldu barnsins eru sett einstaklingsmiðuð markmið sem taka mið af aðstæðum, áhuga og framtíðarsýn einstaklingsins og fjölskyldunnar.
Til þess að sækja iðjuþjálfun og sjúkraþjálfun á Æfingastöðinni þarf að hafa beiðni frá lækni. Nánar um þjónustuferlið hér.
Þjálfunin er miðuð við þörf hvers og eins og er unnin í nánu samstarfi við börnin og fjölskyldur þeirra. Markmiðið er að auka færni barnsins til að það eigi auðveldara með þátttöku í leik og daglegum viðfangsefnum sem hafa þýðingu fyrir það.
Þau úrræði sem eru í boði í sjúkra- og iðjuþjálfun eru af margvíslegum toga. Þau geta verið í formi þjálfunar, ráðgjafar, eftirfylgni og útvegun stoð- og hjálpartækja. Boðið er upp á einstaklingsþjálfun og fjölbreytta hópþjálfun ásamt æfingum í sundlaug og íhlutun með aðstoð dýra.
Þjónustan fer fram á Æfingastöðinni eða í nánasta umhverfi barnsins, svo sem í leikskólanum, skólanum eða á heimili þess.
Æfingastöðin sinnir einnig afmörkuðum hópi fullorðinna einstaklinga, sem notið hafa þjónustu frá barnæsku. Þá er boðið upp á þjálfun fyrir fólk með Parkinson.