Karfan þín

Karfan er tóm.

Reykjadalur – tómstundir, vinátta og ævintýri fyrir öll!

Reykjadalur hefur frá árinu 1963 verið mikilvægur vettvangur tómstunda og vináttu fyrir fötluð börn og ungmenni. Sumarbúðirnar voru stofnaðar af Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra og hafa í gegnum árin þróast og eflst með fjölbreyttum og sérsniðnum þjónustuúrræðum.

Markmið Reykjadals er að skapa uppbyggjandi og jákvæða upplifun þar sem hver og einn fær að njóta sín á eigin forsendum. Vinátta er mikilvægur hluti af dvölinni og lögð er áhersla á að gestirnir upplifi sig sem virkan hluta af samheldnum hópi – þar sem öll eru jöfn. Í Reykjadal starfar kraftmikið og hugmyndaríkt starfsfólk sem leggur sig fram við að gera hverja dvöl einstaka og ógleymanlega.

Starfsemi Reykjadals nær yfir allt árið og byggir á fjölbreyttum frístundum þar sem gleði, ævintýri og þátttaka allra eru í forgrunni. Árlega nýta sér um 500 fjölskyldur þjónustu Reykjadals og um 250 börn og ungmenni á aldrinum 8–20 ára dvelja í sumar- og helgardvölum í Mosfellsdal. Áhugi er mikill og því er algengt að biðlistar séu langir. 

Reykjadalur býður einnig upp á fjölbreytt tækifæri fyrir mismunandi hópa:

  • Ævintýrabúðir Reykjadals – fyrir börn og ungmenni með ADHD, einhverfu og/eða andlegar áskoranir.
  • Vinahópar Reykjadals – sumarfrí fyrir fatlað ungt fólk á aldrinum 20–30 ára. Hópurinn ákveður sjálfur hvert er farið og skipuleggur dagskrá sína.
  • Fjölskyldufrí Reykjadals – ætlað fjölskyldum fatlaðra barna á aldrinum 2–12 ára. Þar fá foreldrar og systkini tækifæri til að njóta samveru, fá stuðning og kynnast öðrum í svipuðum aðstæðum.
  • Æskuvinir Reykjadals er nýjasti hópurinn, ætlaður einstaklingum 30 ára og eldri sem dvaldi í Reykjadal sem barn eða unglingur. Árlegir viðburðir og samverustundir viðhalda tengslum við „Dalinn“ og rækta vináttuna áfram.
  • Auk þess höldum við Sumarlokaball og Kærleiksdag um jólin samhliða útgáfu Kærleikskúlunnar sem árlega styrkir starfsemi Reykjadals.

Fylgist með – við auglýsum umsóknir reglulega hér á síðunni og á samfélagsmiðlum Reykjadals. 

 

Þinn stuðningur er okkar styrkur!

Styrkir, gjafir og fjárveitingar einstaklinga og fyrirtækja spila stórt hlutverk í allri uppbyggingu í Reykjadal. Við erum bakhjörlum okkar afskaplega þakklát. Styrkja má með eingreiðslu eða millifærslu við fjölbreytt tilefni. Við útbúum þakkar- og tækifæriskort sé þess óskað. Hafið sambandi við slf@slf.is 

Vinir Reykjadals er stuðningsveit sumarbúðanna í Reykjadal, fólk sem styður starfsemina með mánaðarlegum styrkjum. Vilt þú gerast vinur Reykjadals? Smelltu þá hér