Heimur eftir Guðjón Ketilsson er Kærleikskúla ársins & Haraldur Þorleifsson hlaut Kærleikskúluna árið 2023

Tuttugasta og fyrsta Kærleikskúlan sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra gefur út var afhjúpuð við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur í dag, miðvikudaginn 6.desember. Ár hvert velur Styrktarfélagið handhafa Kærleikskúlunnar, einhvern sem hefur með verkum sínum breytt viðhorfum og bætt líf samborgara sinna og samfélag, vakið athygli á mikilvægum gildum og sjálfsögðum réttindum.

Gestaráð Reykjadals afhenti Haraldi Þorleifssyni Kærleikskúlu ársins 2023. Haraldur hefur látið til sín taka á mörgum sviðum samfélagsins, sem frumkvöðull, athafnamaður, hönnuður, tónlistarmaður og mannvinur. Hann er baráttumaður fyrir mannréttindum og betra samfélagi og hefur vakið þjóðarathygli fyrir framgöngu sína í verkefninu Römpum upp Ísland sem hefur það að markmiði að bæta aðgengi fatlaðs fólks í samfélaginu en Haraldur rampaði upp Reykjadal árið 2022.

Verkefnið sem snerist í fyrstu um að byggja 100 rampa í Reykjavík, hefur vaxið hratt og nýlega var þeim stóráfanga fagnað að eitt þúsund rampar hafa verið byggðir víðsvegar um landið. Í samstarfi við Reykjavíkurborg er nú stefnt á að rampa upp opinberar byggingar, gera nýja rampa aðgengilegri fyrir blinda og sjónskerta og setja í forgang að bæta aðgengismál í leik- og grunnskólum. Árangurinn sem Haraldur hefur náð við að sameina krafta þjónustuaðila, einkaaðila og yfirvalda til að leita lausna og láta verkin tala fljótt og vel er, eftirtektarverður og víst að verkefnið hefur breytt viðhorfum og vakið samfélagið til vitundar um aðgengismál í víðu samhengi.

 

HEIMUR er KÆRLEIKSKÚLAN 2023

HEIMUR eftir Guðjón Ketilsson er Kærleikskúla ársins 2023. Guðjón er einn fremsti og afkastamesti listamaður landsins og hlaut hann Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2020. Hann vinnur að jöfnu að gerð teikninga og skúlptúra þar sem handverkið er í forgrunni. Verk hans rýna í mannlegt eðli, líkamann og hversdagslegt umhverfi þar sem kunnuglegir hlutir, form, orð eða ritaður texti eru dregin fram í nýju og gjarnan óvæntu samhengi.

Það er Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna sem hjúpar Kærleikskúluna árið 2023. Kúlan verður hér til sem listgripur á Íslandi þegar 75 ár eru liðin frá því að sáttmálinn var staðfestur til þess að vinna að friðsamlegum samskiptum þjóða. Yfirlýsingin kveður á um mannréttindi sem allir eiga tilkall til óháð kynþætti, litarhætti, kynferði, tungu, trú, skoðunum, þjóðerni, uppruna, eignum, ætterni eða öðrum aðstæðum. Sköpun Kærleikskúlunnar á sér því uppsprettu í sammannlegri samhygð, náungakærleika og von um friðsamlegri samskipti þjóða.

 

Allur ágóði af sölu Kærleikskúlunnar rennur til sumarbúðanna í Reykjadal. Sölutímabil Kærleikskúlunnar er 7.-21. desember. Kærleikskúlan kemur í takmörkuðu upplagi og er fáanleg í völdum verslunum um land allt og netverslun SLF, kærleikskúlan.is

Kærleikskúlan er fallegur listmunur og skemmtileg til söfnunar en það sem gerir hana dýrmæta er innihaldið – kærleikurinn. Nafn kúlunnar er táknrænt en markmið með sölu hennar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna og allur ágóði rennur til starfsemi sumarbúðanna Reykjadal þar sem gleði, jákvæðni og ævintýri eru í fyrirrúmi. Þetta er í tuttugasta og fyrsta sinn sem félagið gefur út Kærleikskúluna en margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar hafa lagt félaginu lið með því að skapa listaverk á glerkúluna.

 

FYRRI KÆRLEIKSKÚLUR

2003 – 2 MÁLARAR – Erró

2004 – AUGAÐ – Ólafur Elíasson

2005 – ÁN UPPHAFS – ÁN ENDIS – Rúrí

2006 – SALT JARÐAR – Gabríela Friðriksdóttir

2007 – HRINGUR – Eggert Pétursson

2008 – ALLT SEM ANDANN DREGUR – Gjörningaklúbburinn

2009 – SNERTING – Hreinn Friðfinnsson

2010 – FJARLÆGÐ – Katrín Sigurðardóttir

2011 – SKAPAÐU ÞINN EIGIN HEIM – Yoko Ono

2012 – LOKKANDI – Hrafnhildur Arnardóttir

2013 – HUGVEKJA - Ragnar Kjartansson

2014 – MANDARÍNA - Davíð Örn Halldórsson

2015 – LANDSLAG - Ragna Róbertsdóttir

2016  - SÝN - Sigurður Árni Sigurðsson

2017 - ŪGH & BõÖGâr – Egill Sæbjörnsson

2018 – TERELLA – Elín Hansdóttir

2019 – SÓL ÉG SÁ – Ólöf Nordal

2020 – ÞÖGN – Finnbogi Pétursson

2021 – EITT ÁR – Sirra Sigrún Sigurðardóttir

2022 – KÚLA MEÐ STROKU – Karin Sander

2023 – HEIMUR – Guðjón Ketilsson

 

Kærleikskúlan.is