Karfan þín

Karfan er tóm.

Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar - 8. september 2024

Í tilefni af Alþjóðlegum degi sjúkraþjálfunar sunnudaginn 8. september n.k. óskum við sjúkraþjálfurum okkar á Æfingastöðinni og sjúkraþjálfurum um heim allan til hamingju með daginn. Við þökkum fyrir það mikilvæga starf sem unnið er á degi hverjum á Æfingastöðinni. 
 
Á degi sjúkraþjálfunar 2024 beinist athyglin að mjóbaksverkjum og hlutverki sjúkraþjálfara í forvörnum og við meðhöndlun. Heimssamband sjúkraþjálfara (World Physiotherapy) hefur gefið út margskonar fræðsluefni um mjóbaksverki sem má nálgast hér.