Karfan er tóm.
- Styrktarfélagið
- Æfingastöðin
- Reykjadalur
- In English
VARA ER UPPSELD.
Jólaóróinn 2012 er Stúfur eftir Þórunni Árnadóttur og kvæði eftir Braga Valdimar Skúlason.
Allur ágóði af sölunni rennur starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Jólaóróinn er framleiddur í takmörkuðu upplagi og kemur í fallegri gjafaöskju.
Vara er ekki til sölu
STÚFHENDUR UM STÚF
Stúfur birtist óvænt, eftir enga bið...
– á mettíma úr móðurkvið.
Grýla hafði gengið um á gömlum serk
– möglað yfir magaverk.
Lúði tók hann léttvægan í loðinn hramm
– varla meir en milligramm.
Hanteraði hikandi í hrömmum sér:
–„Þetta’ er ekki undan mér!“
Frændur birtust, forynjur og flennitröll – knúsa vildu krílið öll.
Sneru heim með heillaskeytin, heldur svekkt – sáu ekkert, sögðust blekkt.
En Stúfur óx, þá aðallega upp í loft
– þó hann týndist ansi oft.
Fyrr en varði frækinn náði fullri smæð
– mældist einn og átta’ á hæð.
Hann vildi gera velflest til að verða stór – drakk því bæði blek og klór.
En ekkert gekk og áfram var hann algert peð – risavaxnar vonir með.
Í andliti hans agnarlítið alskegg spratt – ítrekað hann um það datt.
Lítið var hann liðtækur við leik og störf – almennt var hans ekki þörf.
Bræður hans til byggða þurftað bera Stúf – það var skylda létt og ljúf.
Hann rúmaðist í rennilæstum rúgmjölssekk – sem við þrúgur þeirra hékk.
Vígreifur og vaskur mætti vinnu til
– krökkum færði kerti og spil.
En tróðst þá undir tindilfættum trítlaher – fljótur mátti forða sér.
Svo langaði hann ljúfmeti að læðí skó
– en upp í gluggann ekki dró.
Í bríaríi bræður hans þá birtust tveir.
– barni gottið báru þeir.
Eftir þetta óhapp varð hann ósköp smár
– litill í sér; leiður, sár.
Að lokum fann hann leið sem í sér lausnir fól – hann setti’ á laggir Litlu-jól!
...
Stúfur er í eðli sínu eins og við
– og raunar mestallt mannkynið.
Hvar sem þörf á hugrekki að höndum ber
– stækkar hann í hjarta sér.
Bragi Valdimar Skúlason