Karfan er tóm.
- Styrktarfélagið
- Æfingastöðin
- Reykjadalur
- In English
Jólaóróinn 2018 er Stekkjastaur eftir Dögg Guðmundsdóttur og kvæði eftir Dag Hjartarson rithöfund.
Allur ágóði af sölunni rennur starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Jólaóróinn er framleiddur í takmörkuðu upplagi og kemur í fallegri gjafaöskju.
Vara er ekki til sölu
STEKKJASTAUR
djúpur snjór
höggdeyfir þung skref
kuldinn
deyfir fingur
og eyru
meira að segja tær
skrítið
hugsar hann
en forðast að horfa niður
á staurfæturna
horfir frekar upp
á tunglið
sem höggdeyfir myrkrið
og loks glittir í glugga
með stökum skó
þá dregur ský fyrir tungl
glampinn í glerinu slokknar
en samt staulast hann áfram
hraðar
hugsar:
að missa fæturna
er ekki það sama og
að missa fótanna
heldur áfram
hraðar
eins og tunglið geti á hverri stundu
smeygt sínu einfætta skini
gegnum glerið
ofan í skóinn
og gengið í burtu
- Dagur Hjartarson