Karfan er tóm.
- Styrktarfélagið
- Æfingastöðin
- Reykjadalur
- In English
Jólaóróinn 2019 er Gáttaþefur eftir Karitas Sveinsdóttir og Hafsteinn Júlíusson hjá HAF STUDIO og kvæði eftir Lindu Vilhjálmsdóttur, skáld.
Allur ágóði af sölunni rennur starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Jólaóróinn er framleiddur í takmörkuðu upplagi og kemur í fallegri gjafaöskju.
Vara er ekki til sölu
GÁTTAÞEFUR
í draumnum
eru þeir bræður að metast um það
hver skeri flottastar fléttur í brauðið
grýla og leppalúði
standa sveitt við steikingarpottinn
og veiða kökurnar upp löðrandi í feiti
þegar hellirinn hefur fyllst
af stökkum laufabrauðsstöflum
hrekkur hann upp með andfælum
lyktin liggur í loftinu
og hann stekkur slefandi á fætur
og þrammar af stað sleikjandi út um
yfir fjöllin og firnindin
og blæs ekki úr nös fyrr en við brauðhúsin
þar kastar hann mæðinni snöggvast
síðan rekur hann gríðarstórt gáttaþefsnefið
í gáttina og þefar
Linda Vilhjálmsdóttir