Karfan þín

Karfan er tóm.

Vörunúmer: KULA2

Kærleikskúlan 2004 - Ólafur Elíasson

Verðán/vsk
0 kr.

VARA ER UPPSELD

AUGAÐ eftir Ólaf Elíasson er Kærleikskúla ársins 2004. 

Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til sumarbúða Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í Reykjadal. Kærleikskúlan er framleidd í takmörkuðu upplagi og kemur í fallegri gjafaöskju.

 

 

 

 

Verðán/vsk
0 kr.

AUGAÐ eftir Ólaf Elíasson er Kærleikskúla ársins 2004

Uppspretta verksins er augað. Augun eru stórkostlegt verkfæri, þau eru farvegur fyrir samskipti, þau hafa áhrif á skilning okkar og skoðanir á okkur sjálfum, öðrum, umhverfinu – heiminum!

“Ég hef mikla ánægju af því að leika mér með eitthvað sem mér þykir fallegt. Fegurð er varasamt orð vegna þess að það er búið að staðla það og gera að einhverri klisju. Því ættum við kannski að tala um fagurfræði frekar en fegurð. Oft getur eitthvað sem er mjög ljótt við ákveðnar aðstæður orðið ótrúlega fallegt við aðrar. Svo fegurð er ekki einangrað fyrirbæri, hún er frekar spurning um eitthvað sem er einhvers virði og virði má alltaf semja um.”

- Ólafur Elíasson

 

Kærleikskúlan er fallegur listmunur og skemmtileg til söfnunar en það sem gerir hana dýrmæta er innihaldið – kærleikurinn. Nafn kúlunnar er táknrænt en markmið með sölu hennar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna og allur ágóði rennur til starfsemi sumarbúðanna Reykjadal þar sem gleði, jákvæðni og ævintýri eru í fyrirrúmi.