Karfan þín

Karfan er tóm.

Vörunúmer: KULA22

Kærleikskúlan 2024 - Hildur Hákonardóttir

Blóm og ást þurfa næringu eftir Hildi Hákonardóttur er Kærleikskúla ársins 2024. 

Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til sumarbúða Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í Reykjadal. Kærleikskúlan er framleidd í takmörkuðu upplagi og kemur í fallegri gjafaöskju. Sölutímabilið stendur frá 5.-20. desember 2024. 

Yfirlit yfir söluaðila Kærleikskúlunnar 2024 má finna hér

Vara er ekki til sölu

Blóm og ást þurfa næringu eftir Hildi Hákonardóttur er Kærleikskúla ársins 2024. 

Melablómið er eitt af okkar algengustu vorblómum. Samt tökum við sjaldan eftir þessu hvíta, litla blómi sem dreifir sér um gróðursnauða og hrjóstruga mela og hefur þjálfað sig í að glæða þá lífi og laða að skordýr sem svo hjálpa til að frjóvga önnur blóm sem kynnu að voga sér þangað.  

Með hógværð sinni minnir það okkur á að það þarf ekki stórar gjafir til að gleðja aðra. Bros og huggunarrík orð geta gefið meiri gleði. Melablómið þiggur yl frá sólinni, vatn úr himnalindunum og steinefni úr grjótinu. Þó  skartar það fjaðurflipóttum blöðum eins og fífillinn, konungur villiblómanna, kannski til að minna okkur á að það hefur líka sitt stolt.  

En ást þarfnast næringar rétt eins og blóm ef hún á að geta þrifist. Þá eru það gjarnan litlu hlutirnir sem skipta mestu máli. Ylur af snertingu handa, hvatningarorð úr lindum góðmennskunnar og hugvekjandi hjálpsemi. 

Hildur Hákonardóttir

 

Hildur Hákonardóttir (f. 1938) hefur á löngum starfsferli tekið á málefnum samtíma síns, einkum umhverfis- og jafnréttismálum, og nýtt til þess fjölbreytta miðla. Hún lærði myndvefnað við Myndlista- og handíðaskólann 1964-68 og Listaskóla Edinborgar árið 1969 og starfaði sem skólastýra Myndlista- og handíðaskólans á árunum 1975-78.  

Hildur á að baki fjölda sýninga og hefur gefið út fjölbreytt ritverk, m.a. Ætigarðurinn – handbók grasnytjungsins, Já, ég þori, get og vil (2005) og Hvað er svona merkilegt við það að vera biskupsfrú? I-II (2019/2021). Yfirlitssýningin Rauður þráður í Listasafni Reykjavíkur hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2023 og Hildur hlaut fálkaorðuna 2024 fyrir framlag sitt til myndlistar og störf í þágu kvennabaráttu.