Karfan er tóm.
- Styrktarfélagið
- Æfingastöðin
- Reykjadalur
- In English
Við minnum á að umsóknarfrestur um sumardvöl í Reykjadal fyrir árið 2019 er til 1. febrúar næstkomandi.
Í Reykjadal er börnum og ungmennum sem þurfa sérstaka þjónustu vegna fötlunar gefið tækifæri til að njóta sumardvalar og skapa ógleymanlegar minningar. Árlega koma um 250 einstaklingar í Reykjadal á aldrinum 8-21 árs. Í Reykjadal er hugmyndafluginu sleppt lausu og þar er haft að leiðarljósi að ekkert sé ómögulegt. Lögð er áhersla á að allir fái að njóta sín á sínum eigin forsendum.
Hægt er að sækja um 6 - 13 daga dvöl. Börn á aldrinum 8 - 19 ára sem búa í foreldrahúsum eiga almennt rétt á 13 daga dvöl í Reykjadal. Þegar börn dvelja í fyrsta skipti í Reykjadal stendur þeim 6 daga dvöl til boða. Ungmenni á aldrinum 20 til 21 árs fá úthlutað 6 daga dvöl. Öll þau börn sem nýta sér búsetuúrræði s.s. sambýli, eiga kost á 6 daga dvöl.
Hér er hægt að fylla út umsóknareyðublað.
Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá forstöðumanni Reykjadals, Margréti Völu Marteinsdóttur: reykjadalur@slf.is