Karfan er tóm.
- Styrktarfélagið
- Æfingastöðin
- Reykjadalur
- In English
Við viljum ráða öflugan iðjuþjálfa sem hefur brennandi áhuga á fjölbreyttu starfi iðjuþjálfunar með börnum og fjölskyldum þeirra, þátttöku í stefnumótun og nýsköpun í starfi. Hvetjum við iðjuþjálfa með reynslu jafnt sem nýútskrifaða til að sækja um. Æfingastöðin er til húsa við Háaleitisbraut 13 í Reykjavík auk þess að útbú er starfrækt í Hafnarfirði. Æfingastöðin er fjölskylduvænn vinnustaður og er vinnuvika starfsfólks í fullri vinnu 36 klst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hæfniskröfur
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar og berist til gunnhildur@slf.is.
Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Jakobsdóttir, yfiriðjuþjálfi, í netfang gunnhildur@slf.is eða í síma 836-3928.
Við viljum ráða öflugan einstakling sem hefur brennandi áhuga á fjölbreyttu starfi með fólki. Æfingastöðin er fjölskylduvænn vinnustaður og er vinnuvika starfsfólks í fullri vinnu 36 klst. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hæfniskröfur
Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar 2023 og berist til yfirþjálfara:
Gunnhildur Jakobsdóttir, yfiriðjuþjálfi, gunnhildur@slf.is
Kolbrún Kristínardóttir, yfirsjúkraþjálfari, kolla@slf.is.