Karfan er tóm.
- Styrktarfélagið
- Æfingastöðin
- Reykjadalur
- In English
Æfingastöðin vill ráða öflugan iðjuþjálfa sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi með börnum og fjölskyldum þeirra, þátttöku í stefnumótun og nýsköpun í starfi. Um er að ræða 100% stöðu en möguleiki er á minna hlutfalli sé þess óskað.
Æfingastöðin er miðstöð þjónustu og þekkingar í hæfingu og endurhæfingu barna og ungmenna. Við erum öflugt teymi iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara og aðstoðarfólks sem höfum það markmið að efla þátttöku barna- og ungmenna.
Á Æfingastöðinni fer meðal annars fram öflugt hópastarf, þjálfun í sundlaug og iðjuþjálfun með hund og hestum. Einnig fara iðjuþjálfar mikið út í leikskóla og skóla með ráðgjöf og íhlutun.
Æfingastöðin er fjölskylduvænn vinnustaður með 36 tíma vinnuviku og góðan sveigjanleika á vinnutíma. Hjá okkur ríkir frábær starfsandi og starfsmannafélagið okkar „Frú Margrét“ stendur fyrir skemmtilegum viðburðum allt árið. Við erum einnig með sterka endurmenntunarstefnu og er greitt bæði í Starfsmenntunarsjóð og Starfsþróunarsetur BHM.
Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi frá Embætti landlæknis.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf.
Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Íslenskukunnátta áskilin.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi BHM og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og stofnanasamningi SLF við Iðjuþjálfafélag Íslands.
Gefið er frí á launum milli jóla- og nýárs.
Umsóknarfrestur er til og með 6. janúar 2025. Umsóknir berist til gunnhildur@slf.is
Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Jakobsdóttir, yfiriðjuþjálfi, í netfang gunnhildur@slf.is eða í síma 6950272.