Karfan er tóm.
Við leitum að ábyrgðarfullu og drífandi fólki til að starfa við ný og spennandi sumarverkefni Reykjadals. Verkefnin eru unnin að frumkvæði félagamálaráðuneytisins sem viðbrögð við félagslegum áhrifum Covid- 19 faraldursins. Markmið verkefnanna er að bjóða börnum og ungmennum með fötlun og/eða sérþarfir upp á afþreyingu í sumar og rjúfa félagslega einangrun þeirra eftir þær erfiðu aðstæður sem sköpuðust í kjölfar útbreiðslu faraldursins.
Við leitum að starfsfólki í þrenns konar verkefni:
Þetta er tilvalið tækifæri til að öðlast reynslu og taka þátt í skemmtilegu sumarstarfi. Við leitum að fólki sem hefur áhuga á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi. Tímabilið er um 5-6 vikur. Það er kostur ef umsækjandi getur hafið störf sem fyrst og unnið er út miðjan ágúst.
Við hvetjum sérstaklega nemendur á félags-, mennta- og heilbrigðisvísindasviði til að sækja. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.
Helstu verkefni: |
Hæfniskröfur: |
|
|
Nánari upplýsingar veita Margrét Vala Marteinsdóttir forstöðukona í Reykjadal s. 695-4879 og reykjadalur@slf.is eða Hrefna Rós Matthíasdóttir markaðsstjóri s. 823-6030 og hrefna@slf.is