Karfan þín

Karfan er tóm.

Reykjadalur hlýtur styrk úr Minningarsjóði Jóhanns Péturs Sveinssonar

Andrea Rói Sigurbjörns, forstöðumaður Reykjadals, ásamt styrkhöfum
Andrea Rói Sigurbjörns, forstöðumaður Reykjadals, ásamt styrkhöfum

Reykjadalur hlaut á dögunum 6 milljón króna styrk úr Minningarsjóði Jóhanns Péturs Sveinssonar. 

Minningarsjóður Jóhanns Péturs heitins Sveinssonar lögfræðings úthlutaði 10 milljónum króna 6. nóvember s.l.

Jóhann Pétur var forðum formaður Sjálfsbjargar og lét til sín taka í baráttu- og réttindamálum. Sjálfsbjörg er 65 ára um þessar mundir og það hefði Jóhann Pétur einnig orðið. Þrátt fyrir fötlun af völdum liðagigtar lét hann fátt stöðva sig; hann nam lögfræði við Háskóla Íslands, gerðist síðan lögmaður og var virkur í ýmsu félagsstarfi.