Karfan þín

Karfan er tóm.

Sjúkraþjálfari - fjölbreytt starf á Æfingastöðinni

Sjúkraþjálfari - fjölbreytt starf á Æfingastöðinni

Æfingastöðin auglýsir eftir sjúkraþjálfara til að starfa með börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra. Um er að ræða 100% stöðu.

Æfingastöðin er miðstöð þjónustu og þekkingar í hæfingu og endurhæfingu barna og ungmenna. Við erum öflugt teymi sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og aðstoðarfólks sem höfum það markmið að efla þátttöku barna- og ungmenna heima fyrir, í skólanum og úti í samfélaginu.

Árlega nýta um 1400 börn og fjölskyldur þeirra sér fjölbreytta þjónustu Æfingastöðvarinnar. Við bjóðum meðal annars upp á öflugt hópastarf, þjálfun í sundlaug, sjúkraþjálfun á hestbaki og iðjuþjálfun með hund. Einnig fara þjálfarar mikið út í leikskóla og skóla með ráðgjöf og íhlutun. 

Við viljum ráða öfluga sjúkraþjálfara sem hafa áhuga á fjölbreyttu starfi með börnum og fjölskyldum þeirra, þátttöku í stefnumótun og nýsköpun í starfi.

Æfingastöðin er fjölskylduvænn vinnustaður með 36 tíma vinnuviku fyrir fullt starf og góðan sveigjanleika á vinnutíma. Hjá okkur ríkir frábær starfsandi og starfsmannafélagið okkar „Frú Margrét“ stendur fyrir skemmtilegum viðburðum allt árið. Við erum einnig með sterka endurmenntunarstefnu og er greitt bæði í Starfsmenntunarsjóð og Starfsþróunarsetur BHM.

 

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari frá Embætti landlæknis
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf 
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum       
  • Íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi BHM og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og nýjum stofnanasamningi SLF við Félag sjúkraþjálfara.
Gefið er frí á launum milli jóla- og nýárs.

 

Umsóknarfrestur er til og með 10.september 2024

Umsóknir berist til kolla@slf.is

Nánari upplýsingar veitir

Kolbrún Kristínardóttir, yfirsjúkraþjálfari 
kolla@slf.is  
8636380