Karfan þín

Karfan er tóm.

Starfsmenn Arion banka styrkja Reykjadal

Nýlega átti starfsmannafélag Arion banka 80 ára afmæli og að því tilefni ákvað bankinn að leggja fram 25 þúsund krónur fyrir hvern starfsmann sem renna munu til góðgerðarmála sem tengjast velferð barna. Hver og einn starfsmaður fékk tækifæri til að velja félag sem stuðlar að bættum hag barna og hlutu fjöldi góðgerðarfélaga veglegar upphæðir. Þeirra á meðal var Reykjadalur en 79 starfsmenn völdu að styrkja sumarbúðirnar og skilar það sér í kr. 1.975.000! Við þökkum starfsmönnum Arionbanka kærlega fyrir þennan ómetanlega stuðning!