Karfan þín

Karfan er tóm.

Steinunn Ása Þorvaldsdóttir er handhafi Kærleikskúlunnar 2022

Ljósmynd: Sunna Ben
Ljósmynd: Sunna Ben

Tuttugasta Kærleikskúlan sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra gefur út var afhjúpuð við hátíðlega athöfn. Ár hvert velur Styrktarfélagið handhafa Kærleikskúlunnar, einhvern sem hefur með verkum sínum breytt viðhorfum og bætt líf samborgara sinna og samfélag, vakið athygli á mikilvægum gildum og sjálfsögðum réttindum.

Eva Þengilsdóttir, hugmyndasmiður Kærleikskúlunnar og framkvæmdarstjóri ÖBÍ, afhenti Steinunni Ásu Þorvaldsdóttur Kærleikskúlu ársins 2022. Steinunn Ása hefur látið til sín taka á mörgum sviðum samfélagsins, í rétttindabaráttu fatlaðs fólks, boðið sig fram til alþingis til að fylgja eftir hugsjónum sínum, tekist á við stofnanir og stjórnvöld ef þurft hefur og er hún einn af þáttastjórnendum sjónvarpsþáttarins margverðlaunaða Með okkar augum. 

Nýlega kom út bæklingurinn ,,Saga Steinunnar" hjá Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar. Þar rekur Steinunn Ása sína sögu og reynslu af fordómum og ofbeldi - og segir meðal annars: ,,Fáfræði er líka hræðsla - og fordómar eru hluti af okkur en við megum ekki láta fordóma stjórna okkur (...) það er mikilvægt að samfélagið taki fötluðu fólki eins og það er, beri virðingu fyrir því og geri ráð fyrir okkur. ... Eins og margoft hefur komið fram þá er það mikilvægt að halda áfram og gefast ekki upp. Reynslan okkar hjálpar til. Í dag er ég sjálf sterk og hugrökk kona sem vil segja söguna mína …" 

 

KÆRLEIKSKÚLA ÁRSINS 2022 OG SÉRÚTGÁFA

Kúla með stroku eftir þýsku listakonuna Karin Sander er Kærleikskúla ársins 2022. Karin hefur verið viðloðandi íslenskt listalíf síðan snemma á tíunda áratugnum og er í dag einn fremsti og afkastamesti listamaður sinnar kynslóðar. Verk hennar hafa verið sýnd um heim allan og finnast í opinberum söfnum og safneignum víða um lönd en hún verður fulltrúi Sviss á átjánda alþjóðlega arkitektúrtvíæringnum í Feneyjum á komandi ári.

Auk hinnar auk hinnar árlegu útgáfu Kærleikskúlunnar hefur Karin Sander einnig útbúið og gefið Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra sérstakt verk sem kemur út í aðeins tuttugu eintökum í tilefni af 20 ára útgáfuári Kærleikskúlunnar. Sérútgáfan verður afhjúpuð föstudaginn 9.desember kl. 17 í i8 gallerí við Tryggvagötu 16.

 

Kærleikskúlan er fallegur listmunur og skemmtileg til söfnunar en það sem gerir hana dýrmæta er innihaldið – kærleikurinn. Nafn kúlunnar er táknrænt en markmið með sölu hennar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna og allur ágóði rennur til starfsemi sumarbúðanna Reykjadal þar sem gleði, jákvæðni og ævintýri eru í fyrirrúmi. Þetta er í tuttugasta sinn sem félagið gefur út Kærleikskúluna en margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar hafa lagt félaginu lið með því að skapa listaverk á glerkúluna.

Allur ágóði af sölu Kærleikskúlunnar rennur til sumarbúðanna í Reykjadal. Sölutímabil Kærleikskúlunnar er 8.-23. desember. Kærleikskúlan kemur í takmörkuðu upplagi og er fáanleg í völdum verslunum um land allt og netverslun SLF, kærleikskúlan.is