Karfan er tóm.
- Styrktarfélagið
- Æfingastöðin
- Reykjadalur
- In English
Æfingastöðin bíður í annað sinn upp á tveggja daga verklegt námskeið í íhlutun með aðstoð hunds. Námskeiðið fer fram dagana 1.-2. október 2023 í Reykjadal í Mosfellsdal og kostar 34.000 kr. SKRÁNING fer fram í gegnum netverlsun SLF.
Verklegt námskeið: Íhlutun með aðstoð hunds, 1.-2. október 2023
Megináhersla verður lögð á verklega þjálfun hunda í æfingum sem nýtast í starfi með fólki innan heilbrigðis-, menntunar- og félagsþjónustu. Line Sandsted mun hafa yfirumsjón með þjálfun teyma en auk hennar verða fleiri erlendir þjálfarar með reynslu. Þá verður einnig fræðsla um leiðir til að tryggja velferð hunda og ábyrgð stjórnanda hunds.
Á námskeiðinu verður farið yfir:
Fyrir hvern er námskeiðið?
Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfa innan heilbrigðis-, félags- og menntunarþjónustu og hefur áhuga á að styðjast við hunda í starfi sínu. Hámarksfjöldi þátttakenda á námskeiði eru 15 teymi eigenda og hunda. Einnig er boðið upp á nokkur pláss fyrir áhorfendur án hunds og er áhugasömum bent á að hafa samband gegnum netfangið gunnhildur@slf.is
Hvorki er gerð krafa um þekkingu og færni hunds né eiganda fyrir þátttöku á námskeiði.
Umsjón
Staðsetning: Reykjadalur í Mosfellsbæ
Tímasetning: sunnudagur 1. okt. og mánudagur 2. okt. 2023, kl. 10:00-16:00, báða daga. Samtals 12 klukkustundir.
Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar
Námskeiðsgjald er 34.000 kr. Ekki er boðið upp á mat en kaffi og te er innifalið í námskeiðsgjaldi. SKRÁNING HÉR.
Námskeiðsgjald sem áhorfandi (án hunds) eru 17.000 kr. SKRÁNING HÉR.
Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á gunnhildur@slf.is.
Æfingastöðin áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.
Námskeiðið er fast í formi og gefst ekki tækifæri á einstaklingsþjálfun og/eða ráðgjöf. Hins vegar geta áhugasamir haft samband við Line Sandstedt (line@dyrebaromsorg.no) og bókað einkatíma að loknu námskeiði.
Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Jakobsdóttir, yfiriðjuþjálfi Æfingastöðvarinnar, í netfang: gunnhildur@slf.is